Sumarhátíð foreldrafélags Furugrundar
Sumarhátíð foreldrafélags Furugrundar var haldin með pompi og prakt þann 6. júní síðastliðinn.
Sumarhátíðin gekk vel fyrir sig þrátt fyrir fullkaldan blástur. Leikhópurinn Lotta var með sýningu ásamt því að börnin sýndu danstaktana eftir danskennslu vorannar sem Dagný danskennari stýrði af fagmennsku.
Boðið var upp á popp, safa, ávaxtanammi og andlitsmálningu og birtust ótrúlegustu verur og dýr skyndilega á leikskólanum í kjölfarið.