Bóndadags þorrablót og landsleikur.

Í dag var árlegt þorrablót leikskólans og boðið var upp á grjónagraut ásamt hefðbundnum þorramat og hákarl fyrir þá hugrökkustu. Börnin voru misjafnlega hrifin af veitingunum og þekktu sumt vel en annað verr en þó voru einhverjir sem tóku af skarið og smökkuðu allt mögulegt.

Þorrakórónur voru hannaðar fyrir þorrablótið hver með sínu lagi og í tilefni bóndadagsins þá svöruðu börnin spurningum um "bónda" pabba,afa í sínu lífi . Blöðin má sjá á veggjum deilda. Mörg hnyttin og skemmtileg svör komu sem gaman var að rýna í. Einhverjir pabbar eru til dæmis bara alltaf glaðir, aðrir eru komnir á ellilífeyrisaldur og sumir pabbar eru bestir í að vera vöðvastæltir í ræktinni.

Ekki varð dagurinn verri fyrir það að allar deildir fylgdust með handboltaleik dagsins við mikla gleði.

Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur. Fréttamynd - Bóndadags þorrablót og landsleikur.

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn