Farsældarvika 9. - 13. mars

Í tilefni af farsældarviku höfuðborgarsvæðisins, sem fram fer dagana 9. – 13. mars, viljum við vekja athygli á samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Nánari upplýsingar um farsæld barna má finna hér:

Tengiliður farsældar í skólanum er Sólveig Sigurvinsdóttir sérkennslustjóri.
Í farsældarvikunni mun skólinn bjóða upp á opinn viðtalstíma við Sólveigu og stjórnendur leikskólans miðvikudaginn 11.mars, frá kl 8:15-9:15 þar sem við getum frætt foreldra um hlutverk leikskólans í tengslum við farsældarlögin. Allir velkomnir á skrifstofu sérkennslustjóra sem vilja vita meira.

Innleiðingarteymi farsældar í Kópavogi mun einnig bjóða foreldrum upp á fjarfund um farsældarlögin og innleiðingu þeirra mánudaginn 9. mars kl. 17.30-18. Hlekkur á fræðslufundinn er hér:


EInnig býður heilsugæslan upp á stutt hádegiserindi um farsældin vikunni: Fjöldi stuttra hádegiserinda í farsældarviku | Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Ef þið viljið koma ábendingum til innleiðingarteymis farsældar í Kópavogi getið þið sent Elísu Guðnadóttur, ráðgjafa farsældar í leikskólum Kópavogs tölvupóst á netfangið elisa.gudnadottir@kopavogur.is.

Elísa hefur haldið utan um innleiðingu laganna í leikskólum Kópavogs síðan haustið 2023. Hún hefur stutt við tengiliði farsældar og stjórnendur skólanna á innleiðingartímanum og unnið að því að styrkja bjargir leikskólanna í starfi með börnum og foreldrum ásamt öðrum ráðgjöfum á leikskóladeild menntasviðs Kópavogs.