Alþjóðadagur kennara

Alþjóðlegi kennaradagurinn er haldinn hátíðlegur 5. október ár hvert víða um heim.

 Í Furugrund hefur skapast sú ánægjulega hefð að fagna deginum sérstaklega enda væri leikskólinn ekki sá öflugi og metnaðarfulli skóli sem hann er án þeirra frábæru kennara og starfsfólks sem þar starfa.

Við í Furugrund gætum ekki verið stoltari af okkar öfluga og samhenta starfsmannahópi. Hér starfar metnaðarfullt og framsýnt lærdómssamfélag sem sameinast um að skapa börnum öruggt, hlýlegt og hvetjandi námsumhverfi. Við trúum því að hvert barn búi yfir einstökum styrkleikum og leggjum okkur fram um að styðja þau í að þekkja eigin hæfni, efla sjálfstraust sitt og þróa með sér jákvæða sjálfsmynd og sterka tilfinningagreind. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér heldur byggir á fagmennsku, umhyggju og ómetanlegu framlagi kennara og starfsfólks á hverjum degi. 

Í tilefni dagsins fóru Eva og Helga á stúfana og ræddu við börnin um kennarana sína. Líkt og áður komu fram einstök, einlæg og oft á tíðum dásamlega skemmtileg svör sem endurspegla það sterka samband sem myndast milli barna og kennara.
Orð barnanna voru síðan notuð til að skreyta sérstaka köku sem starfsfólkinu var færð í tilefni dagsins. Jafnframt fékk allt starfsfólk blóm með sér heim sem tákn um þakklæti okkar fyrir það mikilvæga starf sem það sinnir á hverjum degi.