Hér ber að líta jafnréttisstefnu leikskóla Kópavogs sem byggir á lögum, reglugerðum, stjórnarskrá og sáttmálum sem sett hafa verið um málefnið. Markmið jafnréttismenntunar í Aðalnámskrá leikskóla hafa verið höfð að leiðarljósi við gerð stefnunnar. Þar segir m.a. að markmiðið sé að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu samfélagi í anda skilnings friðar, víðsýnis, umburðarlyndis og jafnréttis. Í skólastarfi skulu allir taka virkan þátt í að skapa samfélag jafnréttis og réttlætis.