Krakkahestar komu í heimsókn í dag í boði foreldrafélagsins. Það var mikil gleði og ánægja með þessa ferfættu gesti okkar þá Ragga rúsínurass, Óvissu og Svan gamla.
Nú er formlegri innleiðingu lausnahringsins lokið. Verkefnastjórinn okkar, Arnrún María (Adda) hefur náð settu marki en við munum halda áfram að æfa okkur og innleiða þetta frábæra verkfæri.
Þann 6. júní síðastliðinn þá héldum við sumarhátíð sem gekk vel fyrir sig þrátt fyrir fullkaldan blástur. Leikhópurinn Lotta var með sýningu ásamt því að börnin sýndu danstaktana.
Útskrift elstu barna leikskólans var þann 30. maí síðastliðin.
Farið var í útskriftarferð og útskriftarathöfn haldin í sal Snælandsskóla. Börnin gistu svo í leikskólanum.